Heim
Ljósanætur tónleikar 88 Hússins
Wednesday, 18 August 2010
Ljósanætur tónleikar 88 Hússins og Landsbankans verða haldnir fimmtudaginn 2. september klukkan  20.00 í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ. Húsið opnar 19.30.

Boðið verður upp á eftirtalda listamenn í þessari röð;

Rapparinn Authentic the exception
The Assassin of a Beautiful Brunette
Stjörnuryk
Hljómsveitin Hinir
Sgt. Millers Misbehavious Daughter
Ramses
A day in december
Rapparinn Ástþór Óðinn 
Reason To Believe
SkyReports

Enginn aðgangseyrir er á tónleikanna. Öll notkun áfengis og eða annarra vímuefna er stranglega bönnuð.


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Tónlistarmenn takið eftir!
Monday, 12 July 2010
Í tengslum við Ljósanótt 2010 verða haldnir unglingatónleikar í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ, fimmtudaginn 2. september nk. 88 Húsið skipuleggur tónleikana í samstarfi við Ljósanæturnefnd. Ungir tónlistarmenn eru hvattir til að sækja um með því að senda tölvupóst á netfangið Þetta netfang er varið fyrir auglýsingasendum, þú þarft að virkja JavaScript til að skoða póstinn - nánari upplýsingar eru veittar í síma 898-1394


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
88 húsið lokað.
Monday, 05 July 2010
88 Húsið er lokað vegna sumarleyfa starfsfólks sökum sumarleyfa - opnum strax að lokinni Ljósanótt. Vinnuskólinn verður samt með fulla starfsemi og verður opið hjá þeim frá mánudögum til fimmtudaga 08:00 til 16:00 og 8:00 til 12:00 á föstudögum.


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Loka ferð 88 Húsráðsins.
Monday, 07 June 2010

Húsráðsferð 88 hússins lokið. Ferðin byrjaði með djúsí hamborgurum á Grillhúsinu á Tryggvagötu. Svo var farið í Lazer Tag með tilheyrandi svita og æsingi. Allir skemmttu sér konunglega og vill 88 Húsið þakka 88 Húsráðinu fyrir gott starfsár. Myndir eru væntanlegar hér.



Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Heimsóknir
Wednesday, 26 May 2010
Í dag miðvikudaginn 26. maí eru vinir okkar frá Dalvíkk að koma í heimsókn og gista, á morgun fimmtudag eru væntanleg ungmenni frá NES en þau munu grilla pylsur og veita viðurkenningar fyrir veturinn. Svo klukkan 20.00 þá mæta ungmenni frá Vík í Mýrdal í 88 Húsið en þau eru í heimsókn í boði Reykjanesbæjar.


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Lokaferð 88 Húsráðs
Tuesday, 25 May 2010
Fyrirhuguð er á næstunni lokaferð 88 Húsráðs en ferðin markar ætíð lok vetrarstarfsins. Fréttir og myndir frá ferðinni munu birtast hér á síðunni. Sumaropnunartími 88 Hússins tekur gildi 1. júní og verður auglýstur hér:)


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Geimverufyrilestri lokið.
Thursday, 06 May 2010

Magnús Skarphéðinsson formaður sálarrannsóknarfélags Reykjavíkur kom í 88 húsið í kvöld. Fór hann með fyrirlestur um geimverur og sýndi meðal annars myndbönd af fljúgandi furðuhlutum eða U.F.O eins og bandaríkjamenn segja. Alls mættu um 30 manns og skemmttu allir sér konunglega og spurðu ótal spurninga. Myndir eru væntanlegar.



Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
Forvarnarfræðsla 88 Hússins
Wednesday, 21 April 2010
Starfsfólk 88 Hússins heimsótti nemendur í Fjölbrautarskóla Suðurnesja miðvikudaginn 21. apríl s.l. í samstarfi við lögregluna og fræddi nemendur um skaðsemi reykinga. Sýnt var forvarnarmyndband og áhugaverðar umræður sköpuðust.


Deila þessari frétt ...
Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! Yahoo! Joomla Free PHP
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Niðurstöður 1 - 8 af 22
88 húsið • Hafnargata 88 • 230 Reykjanesbær • Sími: 421-8890